Magnað gærkvöld!
07. júní 2006 klukkan 21:49

Kóngurinn
Komiði nú öll sæl og blessuð, fór á 06.06.06 tónleikana í gær, afmælis tónleikar Bubba Morthens, orð fá varla lýst því hvernig mér leið í þennan tæpa klukkutíma sem ég stóð þarna fremst við sviðið og sá Kónginn fara hamförum, rétt náði í endann á Utangarðsmönnum en sá allt giggið með Egó, magnað!

Fyrr um kvöldið höfðum við guttarnir í 2.flokk unnið góðan úti sigur á Val á Hlíðarenda, náði að setja eitt kvikyndi í 5-1 sigri okkar, var samt stolið af mér símanum og einhverju af strákunum líka, buxum og fleiru, helvítis ræningalýðurinn 101.
En á morgun er svo leikur á móti Keflavík í Keflavík, ætla að reynda drullast í hópinn, mikil pressa eins og alltaf á okkur að vinna og það gerist á morgun!
En ég er skund á æfingu, þangað til næst! - Gummi.
-Yfir og út

Guðmundur Böðvar Guðjónsson
, en þetta var nú ágætt en þó var mikill kuldi og við röltum heim til Kela eftir smá stund
